Fréttir

true

„Vonandi getum við tekið næsta skref“

Rætt við Brynjar Kristmundsson um tímabilið í sumar Víkingur Ólafsvík varð í fimmta sæti í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar með 38 stig, vann ellefu leiki, gerði fimm jafntefli og tapaði sex leikjum. Liðið var á sínu öðru ári í 2. deild en lék í fyrsta skipti í henni í fyrra síðan árið…Lesa meira

true

Mæðgur á vaktinni

Síðastliðið mánudagskvöld fór starfsfólk Sbarro á Akranesi í borgarferð, keilu og skemmtun í Egilshöllinni. Til stóð að afleysingafólk kæmi úr Reykjavík til að leysa vaktina af, en einhver vanhöld urðu á því. Verslunarstjórinn Aðalbjörg Alla Sigurðardóttir ákvað því að taka sjálf vaktina og fékk dóttur sína Ingu Birnu og dóttur hennar Hafrúnu Öllu til að…Lesa meira

true

Nemendur frá FVA fóru á ungmennaráðstefnu á Reykjum

Sex nemendur fóru sem fulltrúar Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á ungmennaráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði sem haldin var á Reykjum í Hrútafirði um liðna helgi á vegum UMFÍ. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Að jörðu skaltu aftur verða,“ sem vísar til umhverfis- og loftlagsmála en markmið ráðstefnunnar var m.a. að efla umhverfisvitund ungs fólks. Ísak Emil Sveinsson…Lesa meira

true

Enn er mikið um hraðakstur í umdæminu

Fimm minniháttar umferðaróhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku, öll án teljandi meiðsla á fólki. Einn ók út af Útnesvegi á Snæfellsnesi og var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús en ökumaður taldi sjálfur að hann hefði sofnað við aksturinn. 43 ökumenn eru grunaðir um of hraðan akstur í vikunni, þar af voru…Lesa meira

true

„Vonum að litlu skrefin verði stærri á næstu árum“

Rætt við Björn Sólmar Valgeirsson um tímabilið í sumar Skallagrímur úr Borgarnesi lauk leik í áttunda sæti í fjórðu deild karla í knattspyrnu í sumar með 19 stig, vann sex leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði ellefu. Í fyrsta skipti í sögu Íslandsmótsins var fjórða deildin, fimmta efsta deild, tíu liða deild og fékk Skallagrímur…Lesa meira

true

Kynningarfundir fyrirhugaðir vegna Sundabrautar

Búið er að ákveða þrjá kynningarfundi á vegum Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar nú í byrjun október um matsáætlun vegna umhverfisáhrifa Sundabrautar og fyrirhugaðar aðalskipulagsbreytingar. Fundirnir verða haldnir í Klébergsskóla á Kjalarnesi þriðjudaginn 3. október kl. 18:00-19:30, Langholtsskóla miðvikudaginn 4. október kl. 17:30-19:00 og Rimaskóla fimmtudaginn 5. október kl. 17:30-19:00. Morgunfundur verður haldinn föstudaginn 6. október kl.…Lesa meira

true

Niðurrif hafið á Dalbraut 10

Í morgun hófst niðurrif á húsinu við Dalbraut 10 á Akranesi sem var hús Fjöliðjunnar til margra ára. Það er verktakafyrirtækið Urð og grjót ehf. sem er með umsjón með verkinu. Þetta er þriðja húsið af fjórum í bæjarfélaginu sem verður rifið niður og fjarlægt en fyrst í röðinni var Suðurgata 124 og síðan Suðurgata…Lesa meira

true

Nýtt veiðihús verður byggt við Andakílsá

Veiðifélag Andakílsár hefur sótt um byggingarleyfi fyrir nýju veiðihúsi. Núverandi veiðihús var byggt árið 1988 og er 50 fermetrar að stærð en húsið hefur verið selt til flutnings. Ragnhildur Helga Jónsdóttir formaður veiðifélagsins segir í samtali við Skessuhorn að áætlað sé að hafa hraðar hendur í vetur og opna nýtt veiðihús sumarið 2024. Stærð nýbyggingarinnar…Lesa meira

true

Snorrastofa og ítalskur miðaldabær í samstarf

Á sunnudaginn var skrifað undir formlegan samstarfssamning Snorrastofu í Reykholti og bæjarfélagsins Gradara á Ítalíu. Það voru Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu og Filippo Gasperi bæjarstjóri sem innsigluðu samkomulagið, en Bergur tók þátt í málþinginu „Gaming and Cultural Heritage“ á leikjahátíðinni Gradara Ludens Festival 2023 í þessum fallega 5000 manna bæ á austurströnd Ítalíu, rétt suður…Lesa meira

true

Röst verður Baldur líkt og tugur fyrri Breiðafjarðarferja

Ferjan Röst mun fá nafnið Baldur líkt og forverar hennar hafa heitið í nærri heila öld, eða allt frá árinu 1924. Breiðfjarðarferjan Baldur mun því áfram heita Baldur. Til bráðabirgða mun nafnið þó vera Röst þar til gengið hefur verið frá öllum atriðum er varða skráningu á nýju nafni. Um tugur ferja hefur borið nafnið…Lesa meira