Fréttir

true

Sunna Rún valin í U-17

Knattspyrnukonan Sunna Rún Sigurðardóttir hefur verið valin í U-17 ára landsliðið sem tekur þátt í undankeppni EM í Póllandi dagana 10.-19. október. Landsliðið mun æfa 7.-9. október í Miðgarði í Garðabæ áður en haldið verður út til Póllands. Liðið á leik við gestgjafana Pólland fimmtudaginn 12. október og mætir síðan Írlandi sunnudaginn 15. október. Sunna…Lesa meira

true

Réttað var í Arnarhólsrétt í Helgafellssveit á sunnudaginn

Fjárbændur í Helgafellssveit og Stykkishólmi réttuðu í Arnarhólsrétt á sunnudaginn. Smalamennska á laugardag var slegin af vegna veðurs, rigndi hundum og köttum eins og heimamenn sögðu, en þess í stað var farið fyrr af stað á sunnudagsmorgni og gekk smalamennskan vel í blíðuveðri. Féð gengur á svæðinu allt frá Ljósufjöllum og er smalað úr innsveitum…Lesa meira

true

Farandsýning í Stykkishólmi um merkan vísindaleiðangur

Bréf frá Ísland, íslensk grafík og sænska sendiráðið á Íslandi er þema farandsýningar sem sett hefur verið upp í Norska húsinu í Stykkishólmi. Sýningin hefur ferðast um landið en hún mun teygja anga sína um tólf listasöfn og sýningarsali um allt land frá haustinu 2022 og enda í Svíþjóð 2024. Sýningin er samstarfsverkefni félagsins Íslensk…Lesa meira

true

Fjölmenni við opnun sýningar vatnslitafólks

Síðastliðinn laugardag var sýningin Blæbrigði opnuð í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar. Á henni eru sýnd 60 valin verk eftir félagsmenn í Vatnslitafélagi Íslands. Þetta var fimmta sýning félagsins en sú fyrsta sem haldin er utan höfuðborgarsvæðisins. Fjölmenni var við opnun sýningarinnar, bæði gestir úr héraði og lengra að komnir. Meðan gestir skoðuðu verk á sýningunni…Lesa meira

true

Margar bætingar; þrjú Akranesmet og landsliðslágmark á Turbomóti

Síðastliðinn laugardag tóku 19 sundmenn frá ÍA þátt í Turbomóti Ármanns sem var mjög fjölmennt mót með yfir 320 keppendur. Óhætt er að segja að sundfólkið af Akranesi hafi átt glæsilega byrjun á tímabilinu en á mótinu var það með 41 bætingu, þrjú Akranesmet voru slegin og landsliðslágmörkum náð. „Það er alltaf gaman að byrja…Lesa meira

true

Skorrdælingar skoða fýsileika þess að sameinast öðrum

Á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps síðastliðinn miðvikudag var 9. dagskrárliður „Sameiningarmál.“ Undir honum lagði Jón Eiríkur Einarsson oddviti fram minnisblað sitt um sameiningu sveitarfélaga. Var minnisblaðið rætt og samþykkti hreppsnefndin að fara í valkostagreiningu. „Við ræddum þetta mál ekki ítarlega á þessum fundi, en það var engu að síður samþykkt að fara í að velta upp…Lesa meira

true

Fjarheilbrigðisþjónusta gegn kvíða hjá börnum

Nýtt meðferðarúrræði á netinu gæti tryggt mun fleiri börnum og forráðamönnum þeirra um allt land árangursríka geðheilbrigðisþjónustu. Háskólinn í Reykjavík og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vinna saman að verkefninu sem heilbrigðisráðuneytið hefur styrkt með 70 milljóna króna framlagi. Verkefnið byggist á hugrænni atferlismeðferð (HAM) þar sem foreldrum barna með kvíðaröskun eru kenndar aðferðir til að hjálpa börnum…Lesa meira

true

Fulltrúar úr Helgafellssveit kosnir í dreifbýlisráð

Á laugardaginn gengu íbúar í Helgafellssveit á Snæfellsnesi að kjörborðinu í félagsheimilinu Skildi, en þá fór fram síðari kjörfundur vegna kosningar í dreifbýlisráð Sveitarfélagsins Stykkishólms. Fyrri kjörfundurinn var 9. september. Kosningarrétt höfðu íbúar innan sveitarfélagamarka Helgafellssveitar eins og þeim er lýst á sveitarfélagakorti Landmælinga Íslands frá 2014 og íbúar með búsetu í Ögri. Kjörgengur í…Lesa meira

true

Sjóndeildarhringurinn með augum ungs fólks á svæðinu

Ný grunnsýning var opnuð í Norska húsinu í Stykkishólmi á laugardaginn að viðstöddu fjölmenni. Sýningin leysir af hólmi fyrri grunnsýningu safnsins sem staðið hefur yfir á miðhæð hússins undanfarin 22 ár og er því um stór tímamót að ræða. Byggðasafnið hlaut árið 2020 öndvegisstyrk Safnaráðs til að ráðast í gerð sýningarinnar. Víðtækt samráð var haft…Lesa meira

true

Tíðarfarið hefur verið afleitt í september

„Þetta er búið að vera með erfiðasta kafla til sjósóknar sem ég man eftir,“ segir Örvar Marteinsson skipstjóri á línubátnum Sverri SH í samtali við Skessuhorn. „Tíðin er búin að vera með einsdæmum slæm núna í september. Við komust á sjó síðastliðinn föstudag, fórum með 20 bala og var aflinn ágætur, eða um 2,3 tonn…Lesa meira