
Við Selvallavatn er féð rekið í aðhald og ekið þaðan í Arnarhólsrétt. Ljósmyndir: SÁ
Réttað var í Arnarhólsrétt í Helgafellssveit á sunnudaginn
Fjárbændur í Helgafellssveit og Stykkishólmi réttuðu í Arnarhólsrétt á sunnudaginn. Smalamennska á laugardag var slegin af vegna veðurs, rigndi hundum og köttum eins og heimamenn sögðu, en þess í stað var farið fyrr af stað á sunnudagsmorgni og gekk smalamennskan vel í blíðuveðri. Féð gengur á svæðinu allt frá Ljósufjöllum og er smalað úr innsveitum austan frá Árnabotni í Hraunsfirði þar sem reyndar megnið af fénu gengur. Við Selvallavatn er féð rekið í aðhald og ekið þaðan til réttar. Það er gert sökum þess að ferðafólk um svæðið hafði átt það til að aka óvarlega í kringum féð þegar reksturinn var á leið frá Selvallavatni og til réttar.