
Í sumar var ráðist í lagfæringar á sundlaugarsvæðinu á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Sigur-Garðar sáu um verkið. Skipt var um hitalögn og hellur við laugina og umhverfið allt lagfært eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.Lesa meira

Í sumar var ráðist í lagfæringar á sundlaugarsvæðinu á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Sigur-Garðar sáu um verkið. Skipt var um hitalögn og hellur við laugina og umhverfið allt lagfært eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.Lesa meira

Það voru hressir bændur sem voru saman komnir á hrútasýningu á bænum Tungu í Snæfellsbæ síðastliðið föstudagskvöld. Fjárbændur voru mættir með alls 18 veturgamla hrúta til keppni sem var haldin var af Sauðfjárræktarfélaginu Búa. Eftir ítarlega skoðun og vigtun hjá dómurunum Jónmundi Magnúsi Guðmundssyni og Loga Sigurðssyni frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins voru úrslit kynnt. Efsti hrúturinn…Lesa meira

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Skorradalshrepps þriðjudaginn 19. september lá fyrir beiðni Orku náttúrunnar um framkvæmdaleyfi til að endurgera jarðvegsstífla við inntakslón Andakílsárvirkjunar. Vísaði nefndin málinu frá á grundvelli þess að ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir framkvæmdasvæðið, leyfi landeiganda liggur ekki fyrir, virkjanaleyfi liggur ekki fyrir og gögn eru ekki í samræmi við reglugerð…Lesa meira

Á fimmtudagsmorgun urðu vegfarendur um Gilsfjarðarbrú varir við háhyrning á sundi nálægt brúarfyllingunni. Síðar um daginn þegar fjaraði út reyndist hann hafa strandað eins og greint var frá hér á vef Skessuhorns, en fljótlega var talið að dýrið væri dautt. Lögregla og fleiri viðbrags- og eftirlitsaðilar höfðu þannig fylgt verklagi því samkvæmt. Það var svo…Lesa meira

Síðastliðið föstudagskvöld fór fram æfingaleikur körfuknattleiksliða karla hjá Snæfelli í Stykkishólmi og Skallagrími í Borgarnesi. Spilað var í Hólminum. Leikar fóru þannig að Skallagrímur bar sigur úr býtum með 99 stigum gegn 92 stigum heimamanna. Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið til að sjá hvaða þætti leiksins þarf að bæta í lokaundirbúningi fyrir Íslandsmótið. Sjá…Lesa meira

Útgerðarmönnum í Snæfellsbæ er annt um eigur sínar og eru raunar þekktir á landsvísu fyrir góða umhirðu og viðhald báta sem oftast eru vel málaðir og snyrtilegir. Það sama má segja um mannvirki í landi. Í Rifi er nú verið að klæða tvær verbúðir en eldri klæðningar voru búnar með sinn tíma.Lesa meira

Í dag ganga íbúar í Helgafellssveit á Snæfellsnesi að kjörborðinu, en nú verður haldinn síðari kjörfundur vegna kosningar í dreifbýlisráð Sveitarfélagsins Stykkishólms. Kosið er í Félagsheimilinu Skildi. Kosningarrétt hafa íbúar innan sveitarfélagamarka Helgafellssveitar eins og þeim er lýst á sveitarfélagakorti Landmælinga Íslands frá 2014 og íbúar með búsetu í Ögri. Kjörgengur í dreifbýlisráð er hver…Lesa meira

Segir Hinrik Haraldsson rakari á Akranesi – Endurbirt viðtal úr jólablaði 2014 Á Akranesi stendur rakarastofa í litlu húsi við gatnamót Vesturgötu og Skólabrautar. Þar hefur hún verið samfleytt í rekstri í 77 ár. Áður en byrjað var að raka og klippa karlmenn í þessu húsi þá hýsti það símstöð bæjarins. Að þessu húsi voru…Lesa meira

Síðastliðinn föstudag flutti starfsemi hjúkrunarheimilis frá Skólastíg 14 í nýuppgert og glæsilegt hjúkrunarheimili að Austurgötu 7 í Stykkishólmi. Stefnt var að flutningum hjúkrunarheimilis frá Skólastíg að Austurgötu um síðastliðin mánaðamót en flutningar drógust á meðan gengið var frá lausum endum og beðið eftir úttekt á húsnæðinu. Síðasta þriðjudag leit bæjarstjórinn, Jakob Björgvin Jakobsson, við í…Lesa meira

Á upplýsingasíðu Dalabyggðar kemur fram í dag að tekin voru sýni úr vatnsveitu Dalabyggðar sem sýndu að frekari rannsókna væri þörf. Ný sýni hafa verið send á rannsóknarstofu og beðið er eftir niðurstöðum. „Íbúar sem tengdir eru vatnsveitu Dalabyggðar eru því beðnir um að sjóða allt neysluvatn þar til niðurstöður sýnatöku liggja fyrir.“Lesa meira