Fréttir

true

Hefja briddsstarfið næsta mánudagskvöld

Þessir glaðlegu karlar á myndinni eru þeir Ingimundur og Jón. Auk þess að vera frændur og báðir sauðfjárbændur stýra þeir af einurð starfi Bridgefélags Borgarfjarðar. Í réttunum nýlega ákváðu þeir að blása í lúðra og láta þau boð út ganga að vetrarstarf félagsins skuli hefjast mánudaginn 25. september. Sem fyrr verður spilað í félagsheimilinu Logalandi…Lesa meira

true

Íþróttavika Evrópu að hefjast á Vesturlandi

Líkt og undanfarin ár, hlaut Íþrótta- og ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) styrk frá Evrópusambandinu vegna Íþróttaviku Evrópu (European Week of Sport), sem haldin er 23-30. september ár hvert í yfir 30 löndum. Í íþróttavikunni sameinast Evrópubúar undir slagorðinu #BeActive og er markmiðið að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.…Lesa meira

true

Laxveiðin víðast hvar minni en síðasta sumar

Nú er laxveiðitímabilinu víða að ljúka og lokatölur í ánum farnar að birtast. Ljóst er að sumarið var fremur slakt í öllu samhengi. Hér á Vesturlandi er það einkum Haffjarðaráin sem heldur í horfinu. Á toppi yfir heildar veiðina tróna Rangárnar með 3133 laxa sú Ytri og 2204 austari áin. Í þriðja sæti með 1306…Lesa meira

true

Vilhjálmur gefst upp á íslensku krónunni

„Við verðum að fá vitra erlenda, óháða aðila til að kanna kosti og galla við að taka upp nýjan gjaldmiðil,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins á FB síðu sína í dag. „Eins og allir vita þá eru stýrivextir hér á landi 9,25% og verðbólgan 7,7% og erum við með langhæstu stýrivextina miðað…Lesa meira

true

Sýslumenn verða ekki sameinaðir

Guðrún Hafsteinsdóttir sem tók við embætti dómsmálaráðherra í sumar er hætt við áform Jóns Gunnarssonar fyrirrennara hennar í starfi, um að sameina öll sýslumannsembætti landsins í eitt og hafa starfsstöðina á Húsavík. Þetta tilkynnti Guðrún á fundi sýslumannsembættanna á Hotel Natura rétt fyrir hádegi í dag. Vísir.is greindi frá.Lesa meira

true

Heiðarskóli hélt upp á Dag íslenskrar náttúru

Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur 16. september ár hvert og eru einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök hvött til að hafa daginn í huga í starfsemi sinni. Nemendur og starfsmenn Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit héldu upp á daginn í Álfholtsskógi föstudaginn 15. september. Veðrið lék við þau og börnin unnu fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Unglingarnir…Lesa meira

true

Fengu fimmtán laxa í Miðá

Veiðifréttir úr laxveiðinni hafa að undanförnu markast töluvert af veiði á eldislaxi í ám, en köfun eftir slíkum fiski er byrjuð af krafti í nokkrum ánna. Ekki veitir af til þess að ná sem mestu af þeim eldislaxi sem hefur sloppið og leitað upp í árnar. En sem betur fer eru ekki öll tíðindi á…Lesa meira

true

Menning í fyrirrúmi í Hólminum um helgina

Óhætt er að segja að sannkölluð menningarhelgi sé framundan í Stykkishólmi því á morgun, laugardag, opna þrjár nýjar sýningar í bænum. Tvær eru í Norska húsinu og ein í Amtsbókasafninu. Ný grunnsýning verður opnuð klukkan 14:30 í Norska húsinu í Stykkishólmi. Sýningin ber heitið„Hjartastaður – Sjóndeildarhringurinn með augum ungs fólks á Snæfellsnesi frá 1900“og dregur…Lesa meira

true

Nýttu glufu til sjósóknar

Vegna veðurs hefur ekki mikið gefið til sjósóknar frá Snæfellsnesi í þessari viku. Áfram er svo spáð lægðagangi. En í gær, fimmtudag, komust stærri bátar þó á sjó. Dragnótarbátarnir voru að fá ágætis afla og línubátur Stakkhamar landaði 9,3 tonnum í Rifi. Dragnótarbátarnir lönduðu frá þremur og upp í ellefu tonnum.Lesa meira

true

Bjarni Sæmundsson strandaði

Á flóði laust fyrir miðnætti í gær tókst að losa rannsóknaskipið Bjarna Sæmundsson af strandstað á Sveinseyri við Tálknafjörð. Um borð í skipinu voru 20 þegar það strandaði um kl. 21:15 um kvöldið og var hluti áhafnar ferjaður í land. Engan sakaði í þessu óhappi. Björgunarsveitir á Tálknafirði og frá Patreksfirði tóku þátt í aðgerðum…Lesa meira