Vilhjálmur leiðir hér kröfugöngu á 1. maí. Ljósm. mm

Vilhjálmur gefst upp á íslensku krónunni

„Við verðum að fá vitra erlenda, óháða aðila til að kanna kosti og galla við að taka upp nýjan gjaldmiðil,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins á FB síðu sína í dag. „Eins og allir vita þá eru stýrivextir hér á landi 9,25% og verðbólgan 7,7% og erum við með langhæstu stýrivextina miðað við þau lönd sem við viljum bera okkur saman við. Því til viðbótar hafa allar þjóðir sem við miðum okkur við náð mun betur að tækla hækkandi verðbólgu enda fer verðbólga hratt lækkandi erlendis,“ skrifar formaðurinn.