Íþróttavika Evrópu að hefjast á Vesturlandi

Líkt og undanfarin ár, hlaut Íþrótta- og ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) styrk frá Evrópusambandinu vegna Íþróttaviku Evrópu (European Week of Sport), sem haldin er 23-30. september ár hvert í yfir 30 löndum. Í íþróttavikunni sameinast Evrópubúar undir slagorðinu #BeActive og er markmiðið að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum og er óháð aldri, bakgrunni og líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á ná til grasrótarstarfsemi og hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Íþróttavika Evrópu að hefjast á Vesturlandi - Skessuhorn