Hefja briddsstarfið næsta mánudagskvöld

Þessir glaðlegu karlar á myndinni eru þeir Ingimundur og Jón. Auk þess að vera frændur og báðir sauðfjárbændur stýra þeir af einurð starfi Bridgefélags Borgarfjarðar. Í réttunum nýlega ákváðu þeir að blása í lúðra og láta þau boð út ganga að vetrarstarf félagsins skuli hefjast mánudaginn 25. september. Sem fyrr verður spilað í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal klukkan 20. Þangað eru allir áhugasamir briddsspilarar velkomnir. Til að byrja með verða í haust spiluð stök tvímenningskvöld.

Hefja briddsstarfið næsta mánudagskvöld - Skessuhorn