
Bjarki Bóasson með flottan lax úr Miðá í Dölum. Ljósm. gb
Fengu fimmtán laxa í Miðá
Veiðifréttir úr laxveiðinni hafa að undanförnu markast töluvert af veiði á eldislaxi í ám, en köfun eftir slíkum fiski er byrjuð af krafti í nokkrum ánna. Ekki veitir af til þess að ná sem mestu af þeim eldislaxi sem hefur sloppið og leitað upp í árnar.