
Gítarinn var tekinn upp í Álfholtsskógi. Ljósm. Heiðarskóli
Heiðarskóli hélt upp á Dag íslenskrar náttúru
Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur 16. september ár hvert og eru einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök hvött til að hafa daginn í huga í starfsemi sinni. Nemendur og starfsmenn Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit héldu upp á daginn í Álfholtsskógi föstudaginn 15. september. Veðrið lék við þau og börnin unnu fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Unglingarnir fóru til dæmis í skemmtilegt ljósmyndamaraþon, nemendur á miðstigi spáðu í náttúruhugtök og tilfinningar og nemendur á yngsta stigi fóru í gönguferð, frjálsan leik og bingó. Auk þess stóð öllum til boða að grilla brauð, mæta á söngstöð og syngja lög og leika í skóginum. Í hádeginu var boðið upp á grillaða hamborgara.