
Verðlaunahafar; Kristinn Jónasson, Emil Emilsson ásamt dóttur sinni og Friðgeir Karlsson. Ljósmyndir: Alfons Finnsson
Snæfellskir bændur héldu hrútasýningu
Það voru hressir bændur sem voru saman komnir á hrútasýningu á bænum Tungu í Snæfellsbæ síðastliðið föstudagskvöld. Fjárbændur voru mættir með alls 18 veturgamla hrúta til keppni sem var haldin var af Sauðfjárræktarfélaginu Búa. Eftir ítarlega skoðun og vigtun hjá dómurunum Jónmundi Magnúsi Guðmundssyni og Loga Sigurðssyni frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins voru úrslit kynnt.