Unnið er nú að hellulögn og frágangi fyrir framan húsið. Ljósm. stykkisholmur.is

Nýtt hjúkrunarheimili tekið í notkun í Stykkishólmi

Síðastliðinn föstudag flutti starfsemi hjúkrunarheimilis frá Skólastíg 14 í nýuppgert og glæsilegt hjúkrunarheimili að Austurgötu 7 í Stykkishólmi. Stefnt var að flutningum hjúkrunarheimilis frá Skólastíg að Austurgötu um síðastliðin mánaðamót en flutningar drógust á meðan gengið var frá lausum endum og beðið eftir úttekt á húsnæðinu.

Nýtt hjúkrunarheimili tekið í notkun í Stykkishólmi - Skessuhorn