
Vísuðu frá beiðni um framkvæmdaleyfi við inntakslón
Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Skorradalshrepps þriðjudaginn 19. september lá fyrir beiðni Orku náttúrunnar um framkvæmdaleyfi til að endurgera jarðvegsstífla við inntakslón Andakílsárvirkjunar. Vísaði nefndin málinu frá á grundvelli þess að ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir framkvæmdasvæðið, leyfi landeiganda liggur ekki fyrir, virkjanaleyfi liggur ekki fyrir og gögn eru ekki í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. „Skipulags- og byggingarnefnd vísar málinu frá á grundvelli þess að fyrirliggjandi gögn eru ekki fullnægjandi og að virkjanaleyfi liggur ekki fyrir,“ segir í bókun nefndarinnar sem hreppsnefnd staðfesti daginn eftir. Af afgreiðslu nefndarinnar má ráða að ekki verður af framkvæmdum ON á þeim tíma sem fyrirtækið hafði kynnt.