Örvar er hér að fara að hífa kar með ýsu úr Sverri SH. Ljósmyndir: Alfons Finnsson

Tíðarfarið hefur verið afleitt í september

„Þetta er búið að vera með erfiðasta kafla til sjósóknar sem ég man eftir,“ segir Örvar Marteinsson skipstjóri á línubátnum Sverri SH í samtali við Skessuhorn. „Tíðin er búin að vera með einsdæmum slæm núna í september. Við komust á sjó síðastliðinn föstudag, fórum með 20 bala og var aflinn ágætur, eða um 2,3 tonn með öllu, en við róum með landbeitta línu. Þetta eru afar fáir róðrar sem við höfum farið í þessum mánuði. Fyrir róðurinn á föstudag, þá var síðast farið út á mánudeginum.“

Tíðarfarið hefur verið afleitt í september - Skessuhorn