Anna Melsteð sýningarstjóri, Finnur Arnar Arnarsson sýningarhönnuður og Hjördís Pálsdóttir safnstjóri í Norska húsinu. Ljósmyndir: sá

Sjóndeildarhringurinn með augum ungs fólks á svæðinu

Ný grunnsýning var opnuð í Norska húsinu í Stykkishólmi á laugardaginn að viðstöddu fjölmenni. Sýningin leysir af hólmi fyrri grunnsýningu safnsins sem staðið hefur yfir á miðhæð hússins undanfarin 22 ár og er því um stór tímamót að ræða. Byggðasafnið hlaut árið 2020 öndvegisstyrk Safnaráðs til að ráðast í gerð sýningarinnar. Víðtækt samráð var haft um sýninguna þar sem íbúar á Snæfellsnesi tóku virkan þátt í samtalinu um hvernig sýning yrði sett upp. Niðurstaða stýrihópsins var að ný sýning myndi fjalla um ungt fólk á Snæfellsnesi á tuttugustu og tuttugustu og fyrstu öldinni. Anna Melsteð þjóðfræðingur í Stykkishólmi var ráðin sem sýningarstjóri og Finnur Arnar Arnarsson er sýningarhönnuður.

Sjóndeildarhringurinn með augum ungs fólks á svæðinu - Skessuhorn