
Bergur og Filippo Gasperi bæjarstjóri.
Snorrastofa og ítalskur miðaldabær í samstarf
Á sunnudaginn var skrifað undir formlegan samstarfssamning Snorrastofu í Reykholti og bæjarfélagsins Gradara á Ítalíu. Það voru Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu og Filippo Gasperi bæjarstjóri sem innsigluðu samkomulagið, en Bergur tók þátt í málþinginu „Gaming and Cultural Heritage“ á leikjahátíðinni Gradara Ludens Festival 2023 í þessum fallega 5000 manna bæ á austurströnd Ítalíu, rétt suður af Rimini.