Fréttir

true

Drífa vann tvöfalt á HM öldunga í badminton

Skagakonan Drífa Harðardóttir tók í vikunni þátt í heimsmeistaramóti öldunga í badminton sem haldið var í Jeonjy í Kóreu. Mótið er haldið annað hvert ár en Drífa var tvöfaldur heimsmeistari frá síðasta móti í tvíliðaleik og tvenndarleik. Drífu var raðað númer eitt í styrkleika á mótinu í báðum greinum en hún tók þátt í tvíliðaleik…Lesa meira

true

Fleiri stofum lokað vegna gruns um myglu

Í þarsíðustu viku var tekin ákvörðun um að loka kennslustofum 10. bekkjar í Grunnskólanum í Borgarnesi vegna gruns um myglu. Síðasta fimmtudag var síðan ákveðið að loka stofum sem staðsettar eru fyrir neðan umræddar kennslustofur sem voru innsiglaðar í síðustu viku vegna lyktar sem fundist hefur þar. Sýni verða tekin á allra næstu dögum og…Lesa meira

true

Illa gengið um graspyttinn hjá Gámu á Akranesi

Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni seinnipart fimmtudags liðinnar viku með gras og afklippur af trjám sem hann losaði sig við í graspyttinum við móttökustöð Gámu á Akranesi. Það sem vakti athygli var hvað margir halda eða telja sér trú um það að mega henda hvaða úrgangi í móttökustöðina sem er þarna. Þarna mátti sjá timbur,…Lesa meira

true

Fræðsluferð SSV og SSNV til Skotlands

Oft hefur verið rætt um mikilvægi fræðslu fyrir sveitarstjórnarfulltrúa og ýmsar leiðir verið farnar til að koma til móts við þá þörf. Undanfarin kjörtímabil hafa ýmis landshlutasamtök sveitarfélaga skipulagt fræðsluferðir fyrir kjörna fulltrúa og bæjar- og sveitarstjóra til að kynna sér hvað efst er á baugi hjá nágrannaþjóðum. Í hópi þessara landshlutasamtaka eru Samtök sveitarfélaga…Lesa meira

true

Skagamenn Lengjudeildarmeistarar 2023

Liðsmenn ÍA tryggðu sér í gær sæti í Bestu deild karla í knattspyrnu á næsta tímabili eftir stórsigur á liði Gróttu á Norðurálsvelli. Veðrið var ekki alveg að hjálpa til, mikil rigning og rok, en það kom ekki að sök. Bæði leikmenn og stuðningsmenn ÍA voru staðráðnir í því að þetta yrði dagur til að…Lesa meira

true

Skagakonur upp í Lengjudeildina á ný

Það var mikil spenna og eftirvænting í loftinu í gærkvöldi í leik Álftaness og ÍA sem tókust á við prýðis aðstæður á OnePlus vellinum á Álftanesi í 2. deild kvenna í knattspyrnu.  Skagakonur vissu fyrir leikinn að með sigri myndu þær tryggja sér sæti í næst efstu deild, Lengjudeildinni, á næsta tímabili og það mátti…Lesa meira

true

Úr sarpi: „Toppurinn er alltaf að fara í skemmtilegar hestaferðir í góðra vina hópi á góðum hesti“

Segir Sigrún Ólafsdóttir bóndi í Hallkelsstaðahlíð – endurbirt úr jólablaði 2021 „Vertu velkomin hingað upp í fjöll,“ segir Sigrún Ólafsdóttir brosandi þegar hún tekur á móti blaðamanni Skessuhorns á heimili sínu í Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal. Móttökurnar eru hlýlegar og Sigrún býður til sætis í stofunni. Veðrið er stillt og snjóföl yfir öllu, sem gerir útsýnið…Lesa meira

true

Þreyttu Faxaflóasund

Sundfólk úr Sundfélagi Akraness synti sitt árlega Faxaflóasund í gær, fimmtudaginn 14. september en um áheitasund var að ræða til styrktar sundfélaginu. Synt var 21 km löng leið meðfram Langasandi í mikilli veðurblíðu. Alls þreyttu sundið tíu sundgarpar á aldrinum 15-18 ára en skiptu þau vegalengdinni á milli sín þangað til 21 km hafði verið…Lesa meira

true

Mikilvægir leikir hjá liðum ÍA um helgina

Ef allt fer vel gætu karla- og kvennalið ÍA bæði farið upp um deild um helgina. Skagakonur eiga leik í kvöld í 2. deild gegn Álftanesi syðra klukkan 18 og með sigri tryggja þær sig upp í Lengjudeildina á næsta tímabili. Eins og staðan er núna er ÍA í öðru sæti deildarinnar á eftir ÍR…Lesa meira

true

Vel heppnaður aðalfundur FKA Vesturlands

Aðalfundur Vesturlandsdeildar Félags kvenna í atvinnulífinu fór fram á Landnámssetri Íslands í Borgarnesi í gær, fimmtudag. Fundurinn var vel heppnaður og vel sóttur. Farið var m.a. yfir verkefni síðasta árs og kosið í nýja stjórn. Stjórnarkonur Vesturlandsdeildar FKA starfsárið 2023 til 2024 eru: Alexsandra Ýr, Aldís Arna Tryggvadóttir og Íris Gunnarsdóttir. Með þeim í stjórn…Lesa meira