Fleiri stofum lokað vegna gruns um myglu

Í þarsíðustu viku var tekin ákvörðun um að loka kennslustofum 10. bekkjar í Grunnskólanum í Borgarnesi vegna gruns um myglu. Síðasta fimmtudag var síðan ákveðið að loka stofum sem staðsettar eru fyrir neðan umræddar kennslustofur sem voru innsiglaðar í síðustu viku vegna lyktar sem fundist hefur þar. Sýni verða tekin á allra næstu dögum og munu niðurstöður liggja fyrir á næstu tveimur til þremur vikum.

Fleiri stofum lokað vegna gruns um myglu - Skessuhorn