Lið ÍA leikur í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Ljósm. vaks

Skagakonur upp í Lengjudeildina á ný

Það var mikil spenna og eftirvænting í loftinu í gærkvöldi í leik Álftaness og ÍA sem tókust á við prýðis aðstæður á OnePlus vellinum á Álftanesi í 2. deild kvenna í knattspyrnu.  Skagakonur vissu fyrir leikinn að með sigri myndu þær tryggja sér sæti í næst efstu deild, Lengjudeildinni, á næsta tímabili og það mátti greinilega sjá í byrjun leiks smá taugaveiklun í liði ÍA. Álftanes átti nokkur áhlaup sem þó ekkert varð úr á fyrstu mínútunum og síðan komu leikmenn ÍA sér inn í leikinn án þess að skapa sér hættuleg færi. Það var reyndar saga fyrri hálfleiks, lítið um færi og meira um kýlingar í stað þess að liðin reyndu að halda boltanum niðri og spila sig þannig í gegn. Skagakonur voru með smá vind í bakið í fyrri hálfleik og boltinn átti það til að spýtast ansi oft út af við endamörkin sem gerði þeim erfitt fyrir. Miðað við gang leiksins virtist allt stefna í daufan markalausan fyrri hálfleik en fyrirliði ÍA, Bryndís Rún Þórólfsdóttir sá til þess fimm mínútum fyrir hálfleik að svo varð ekki. Skagakonur fengu þá innkast ofarlega vinstra megin á vellinum og Anna Þóra Hannesdóttir sendi háan bolta í átt að markinu. Markvörður Álftaness, Lovísa Rós Lárusdóttir, missti boltann af fætinum frá sér og Bryndís Rún setti boltann snyrtilega í fjærhornið. Staðan í hálfleik 0-1 fyrir ÍA og mikill léttir og ansi gott fyrir sjálfstraustið hjá gestunum að fara með eins marks forskot inn í seinni hálfleikinn.

Skagakonur upp í Lengjudeildina á ný - Skessuhorn