Skagamenn eru komnir á ný í deild þeirra bestu. Ljósm. vaks

Skagamenn Lengjudeildarmeistarar 2023

Liðsmenn ÍA tryggðu sér í gær sæti í Bestu deild karla í knattspyrnu á næsta tímabili eftir stórsigur á liði Gróttu á Norðurálsvelli. Veðrið var ekki alveg að hjálpa til, mikil rigning og rok, en það kom ekki að sök. Bæði leikmenn og stuðningsmenn ÍA voru staðráðnir í því að þetta yrði dagur til að fagna sem varð svo reyndin. Þremur tímum fyrir leik voru stuðningsmenn mættir á Jaðarsbakka í svo kallað Fanzone þar sem málin voru rædd fram og til baka, DJ Marinó hélt stuðinu uppi og börnin gátu skemmt sér í íþróttahúsinu.

Skagamenn Lengjudeildarmeistarar 2023 - Skessuhorn