Fréttir

true

Lánshæfi ríkissjóðs metið stöðugt og fær A

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur birt mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunn er óbreytt í A og horfur eru sagðar stöðugar. Í fréttatilkynningu Fitch segir að A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs endurspegli miklar tekjur á mann og góða stjórnarhætti sem eru sambærilegri við lönd með AAA og AA lánshæfiseinkunn. Ísland hefur byggt upp umtalsverðan viðnámsþrótt sem dregur úr næmni…Lesa meira

true

Borgfirðingar höfðu betur í lokaviðureign púttkeppni sumarsins

Síðasta púttkeppni sumarsins hjá eldri borgurum á Akranesi og í Borgarbyggð fór fram að Hamri í Borgarnesi fimmtudaginn 31. ágúst. Keppnin átti upphaflega að fara fram 10. ágúst en var frestuð vegna fráfalls Þorvaldar Valgarðssonar, formanns íþróttanefndar Feban. Veður var mjög gott á úrslitadaginn þegar 55 keppendur mættu til leiks. Fyrir mótið voru Akurnesingar með…Lesa meira

true

Rekið heim úr fyrstu réttum haustsins

Í gær var réttað í Nesmelsrétt í Hvítársíðu sem jafnframt er fyrsta réttin á lista margra sem framundan eru á Vesturlandi í haust. Í réttina er rekið fé af Síðufjalli sem smalað er sama dag. Fjallið er smalað til að létta á þeim fjárfjölda sem annars væri rekinn til Þverárréttar sem verður næstkomandi sunnudag og…Lesa meira

true

Séra Aðalsteinn Þorvaldsson kvaddur

Í dag, sunnudaginn 3. september, var kveðjumessa í Grundarfjarðarkirkju þar sem séra Aðalsteinn Þorvaldsson kvaddi söfnuðinn eftir 15 ára þjónustu. Séra Aðalsteinn og Lína Hrönn Þorkelsdóttir, eiginkona hans, eru nú að flytjast búferlum til Akureyrar þar sem hann hefur störf sem sóknarprestur. Eftir messuna var kaffisamsæti í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þar sem þeim hjónum var þakkað…Lesa meira

true

Skagamenn einir á toppnum eftir sigur á Þór

Eftir að hafa tapað fyrir Fjölni í byrjun júní á heimavelli hafa Skagamenn unnið sigur í tólf leikjum af síðustu fimmtán í Lengjudeild karla í knattspyrnu, gert tvö jafntefli og aðeins tapað einum leik. Á tímabili virtist lið Aftureldingar á leið beint upp í Bestu deildina og eftir 9-0 sigur liðsins á liði Selfoss 21.…Lesa meira

true

Loka þurfti veginum um Innra Klif um tíma

Mikið óveður gekk yfir Snæfellsnes í gærkvöldi samhliða óvenjulega hárri sjávarstöðu. Nýlega hækkaður sjóvarnargarður rétt innan við félagsheimilið Klif í Ólafsvík hélt ekki gegn ágangi sjávar eins og áætlanir höfðu gert ráð fyrir og þurfi að loka veginum tímabundið fyrir umferð á meðan hreinsa varð með gröfu grjót sem borist hafði á land. Sjórinn gekk…Lesa meira

true

Hvalbátarnir bíða betra veðurs

Hvalveiðar voru í síðustu viku heimilar að nýju eftir að matvælaráðherra ákvað að framlengja ekki tímabundið bann sem sett var frá 20. júní til 31. ágúst. Því mátti hefja veiðar á föstudaginn, en þann dag kom fyrsta haustlægðin yfir landið og því útilokað að halda til veiða. Meðfylgjandi mynd var tekin síðdegis í gær af…Lesa meira

true

Varnargarður of lágur og flæddi í kjallara húsa

Fyrsta haustlægðin gekk yfir landið um helgina. Gul viðvörun var vegna hvassviðris á föstudagskvöld og fram á laugardagsmorgun. Þá var sömuleiðis varað við flóðahættu í ljósi þess að óvenjulega stórstreymt var samhliða komu lægðarinnar. Björgunarsveitir voru á föstudagskvöldið kallaðar út til að koma í veg fyrir foktjón. Til dæmis fór Björgunarfélag Akraness til aðstoðar á…Lesa meira

true

Stórstreymt eftir fyrstu haustlægðina

Fyrsta haustlægðin gekk yfir sunnan- og vestanvert landið á föstudagskvöld og aðfararnótt laugardags þar sem hviðurnar voru að slá upp í tæplega 40 metra á sekúndu. Þar að auki var töluvert stórstreymi þannig að sjórinn fór ansi nærri bryggjupollunum í Grundarfjarðarhöfn. Ekki er vitað til þess að veðrið hafi valdið neinu tjóni að þessu sinni…Lesa meira

true

Stofna félag harmonikkuunnenda á Akranesi og nágrenni

Fimm manna hópur áhugafólks hefur að undanförnu undirbúið stofnun Félags harmonikkuunnenda á Akranesi og nágrenni. Gísli S Einarsson er talsmaður hópsins og leit við á ritstjórn Skessuhorns. „Við erum búin að ákveða stofnfundardag nýs félags, sem verður fimmtudaginn 14. september klukkan 17:00 í anddyri Tónlistarskólans á Akranesi. Í félagið eru allt áhugafólk velkomið sem áhuga…Lesa meira