Fréttir

true

Úr sarpi: „Það er merkileg tilfinning að vera skelfingu lostinn“

Viðtal við Eirík Óskarsson úr jólablaði Skessuhorns frá árinu 2014. „Það er nóg fyrir mig að líta bara hérna út um gluggann snemma á morgnana og horfa norður fyrir Skagann, yfir sjóinn, hvort ég sé vindstreng. Geri ég það þá fer ég ekkert á sjó þann daginn.“ Við erum stödd upp á sjöttu hæð í…Lesa meira

true

Í fyrsta skipti sem framboð er meira en eftirspurn eftir mjólkurkvóta

Talsverðrar eftirvæntingar gætti í röðum kúabænda um markað fyrir greiðslumark í mjólk sem var í dag, 1. september. Í tilkynningu kemur fram að matvælaráðuneytinu hafi að þessu sinni borist 28 gild tilboð um kaup en sölutilboð voru 24. Greiðslumark sem boðið var til sölu nam 1.402.367 lítrum, en óskað var eftir að kaupa 846.000 lítra.…Lesa meira

true

Þörungavinnsla formlega opnuð í Stykkishólmi

Formleg opnun á þörungavinnslu Isea ehf. fór fram á þriðjudaginn síðastliðinn en vinnslan er staðsett við Nesveg 14 og 16 í Stykkishólmi. ,,Vinnslan er smá í sniðum en á sama tíma líka mikilvægt skref fyrir félagið sem liður í framtíðar uppbyggingu enda áform Isea að byggja stærri húsakost fyrir starfsemina,“ segir Anna Ólöf Kristjánsdóttir stofnandi…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir Árborg í síðasta heimaleik sumarsins

Það var aðeins eitt mark skorað í leik Skallagríms og Árborgar í 4. deild karla í knattspyrnu sem fram fór í Borgarnesi í gærkvöldi og voru það gestirnir sem fóru heim með öll þrjú stigin í farteskinu. Það var lítið um færi og nánast engin í fyrri hálfleiknum þar sem liðin spiluðu mjög skipulagðan varnarleik.…Lesa meira

true

Körin um borð áður en hvessti

Í dag hófst nýtt kvótaár. Í morgun var áhöfnin á dragnótarbátnum Gunnari Bjarnasyni SH í Ólafsvík að gera sig klára til veiða og taka fiskikörin um borð. Því er spáð að veðrið versni þegar líður á daginn en þá er erfiðara að hífa létt kör um borð. Veður á hins vegar að vera með besta…Lesa meira

true

Lokað á Skagabraut næstu tvo daga

Í dag og á morgun verður lokað á horni Skagabrautar og Suðurgötu á Akranesi vegna framkvæmda við nýja hraðahindrun sem verður sett við götuna um helgina. Það er svo sem engin nýlunda að þessi gata sé lokuð og ættu íbúar götunnar að vera orðnir öllu vanir ef tekið er mið af síðustu mánuðum þar sem…Lesa meira

true

Loftgæðamælir settur upp á Akranesi

Í samvinnu Akraneskaupstaðar og Umhverfisstofnunar (UST) hefur verið settur upp loftgæðamælir á Akranesi og er hann staðsettur á lóð leikskólans Teigasel. Mæligildi frá honum eru birt með tíu mínútna millibili á vefsíðunni loftgaedi.is ásamt mælingum frá mörgum öðrum stöðum á landinu. Fram kemur á heimasíðu Akraneskaupstaðar að með tilkomu mælisins geta bæjarbúar fengið mikilvægar upplýsingar…Lesa meira

true

Ólöglegt samráð var viðhaft um flutninga vegna stóriðjunnar á Grundartanga

Samkeppniseftirlitið (SE) hefur lagt 4,2 milljarða króna stjórnvaldssekt á skipafélagið Samskip vegna ólöglegs samráðs við skipafélagið Eimskip. Er það hæsta sekt sem íslenskt fyrirtæki hefur fengið fyrir slíka háttsemi. Síðar nefnda félagið hafði árið 2021 gengist við brotunum og greiddi því sekt á grundvelli sáttar, sem var „einungis“ 1,5 milljarður króna. Í niðurstöðu eftirlitsins segir…Lesa meira

true

Varað við skriðuhættu samhliða miklu vatnsveðri um helgina

Veðurstofan hefur sent út aðvörun vegna aukinnar skriðuhættu á vestan- og sunnanverðu landinu um helgina samhliða því að lægð gengur upp að landinu í kvöld og fer hratt yfir það. Gul viðvörun er auk þess vegna hvassviðris, hér um vestanvert landið frá klukkan 21 í kvöld og þar til í fyrramálið. Lægðinni fylgir mikil úrkoma…Lesa meira

true

Vegagerðin varar við hviðum í kvöld

Vegagerðin var að senda tilkynningu vegna veðurs: „Gengur í suðaustan storm í kvöld, hviður um 35 m/s á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi, einkum á milli kl. 19 og 23. Einnig hvasst á Reykjanesbraut á sama tíma með hviðum um 30 m/s þvert á veg.“Lesa meira