Fréttir

true

Tilraunaverkefni garðyrkjustjóra tekist vel

Í byrjun júní var settur upp tilraunareitur á horni Bresaflatar og Ketilsflatar á Akranesi þar sem girtur var af lítill grasblettur. Hann var ekki sleginn, heldur grasið látið vaxa upp og einungis snyrt. Einnig var villtum blómafræjum sáð í blettinn og var þetta liður í að auka líffræðilega fjölbreytni inni í byggð. Í nýju aðalskipulagi…Lesa meira

true

Flókin en vel heppnuð björgunaraðgerð á Austurlandi

Björgunarsveitum á Austurlandi barst klukkan 20 í gær útkall. Ungur maður hafði þá lent í sjálfheldu í klettabelti hátt uppi í Tunguröð, fjalli milli Daladals og Tungudals inn af Fáskrúðsfirði. Drónar voru notaðir til að staðsetja manninn og hafa yfirsýn yfir svæðið á meðan á flóknum aðgerðum stóð. Björgunarsveitir frá Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Neskaupstað komu…Lesa meira

true

Nýtt kvótaár gengið í garð

Í dag hófst nýtt kvótáár í sjávarútvegi. Í síðustu viku voru nokkrir bátar við veiðar, en einn af þeim er dragnótarbáturinn Guðmundur Jensson SH. Illugi Jónasson skipstjóri sagði í samtali við Skessuhorn að þeir væru að reyna að ná í kola, en lítið hefur verið af honum. „Við reynum að forðast að veiða þorsk en…Lesa meira

true

Harðduglegir nemendur FVA gróðursettu tré

Í vikunni mættu útskriftarnemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands ásamt Bryndísi Gylfadóttur náms- og starfsráðgjafa í samstarfi við Skógræktarfélag Akraness og gróðursettu tré við þjóðveginn. Gróðursett voru tré af mismunandi tegundum eins og birki, ilmreyni, sitkaelri, gráreyni, sitkagreni og keisaraösp.  Þarna er verið að rækta upp skjólbelti fyrir bæinn og á næstunni verður gerður þarna góður göngu- og…Lesa meira

true

Birkir Þór tekur við sem íþróttastjóri Leynis

Golfklúbburinn Leynir á Akranesi hefur ráðið Birki Þór Baldursson til að taka við keflinu sem íþróttastjóri klúbbsins. Birkir mun hefja störf að fullu síðar í haust en byrjar strax í næstu viku með golfæfingar fyrir nemendur við afreksbraut Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Birkir Þór sem er fæddur árið 1997 og stundar nám í golfkennaraskóla PGA…Lesa meira

true

Afar bágborinn aðstaða til sjósetningar á Akranesi og Grundartanga

Meðfylgjandi mynd er af þeim rampi sem sjófarendum býðst að nota til sjósetningar eða landtöku á smábátum í Akraneshöfn. Það skal tekið fram að myndin er tekin á fjöru. Framan við rampinn er klettur sem gerir aðstæður allar fremur erfiðar til athafna og þá eru steyptir klumpar neðan við smábryggjuna ekki til að auðvelda þeim…Lesa meira

true

Ástæða til að huga að bátum í höfnum

Samhliða fyrstu haustlægðinni, sem spáð er að gangi yfir landið annað kvöld og aðfararnótt laugardags, verður sömuleiðis mjög stórstreymt. Því er ástæða til að hvetja eigendur báta að huga að festingum og búnaði í tæka tíð. Meðfylgjandi myndir voru teknar í Akraneshöfn nú rétt í þessu.Lesa meira

true

Styrkir til tannréttinga nær þrefaldast frá morgundeginum

Gerð hefur verið breyting á reglugerð um þátttöku Sjúkratrygginga ríkisins í kostnaði við tannlækningar. Nú nær þrefaldað styrkir til almennra tannréttinga frá því sem verið hefur. Hækkunin tekur gildi á morgun, 1. september. Styrkir til tannréttinga eru tvískiptir. Styrkur til meðferðar í bæði efri og neðri góm hækkar úr 150.000 kr. í 430.000 kr og…Lesa meira

true

Veiðar með ströngum skilyrðum

Ný reglugerð um hvalveiðar, sem matvælaráðherra hefur undirritað, á að bæta umgjörð veiða á langreyðum. Reglugerðin felur í sér ítarlegar og hertari kröfur til veiðibúnaðar, veiðiaðferða og aukið eftirlit með hvalveiðum. Skilyrðin snúa m.a. að þjálfun, fræðslu, veiðibúnaði og veiðiaðferðum. Matvælastofnun og Fiskistofa munu vinna saman að eftirliti með veiðunum. Ráðgert er að stofnanirnar sendi…Lesa meira

true

Ákvörðun ráðherra að hvalveiðar fari af stað í fyrramálið

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra var að tilkynna um þá ákvörðun sína að leyfa að hvalveiðar hefjist að nýju í fyrramálið. Þetta tilkynnti hún eftir ríkisstjórnarfund sem fram fór á Egilsstöðum. Núverandi hvalveiðileyfi gildir til áramóta. Leyfið nú verður gefið út með reglugerð í dag þar sem sett eru ítarleg skilyrði um mjög strangt eftirlit með veiðunum.…Lesa meira