Ráðist til uppgöngu í fjallið. Björgunarsveitarmaðurinn Björn Ó Einarsson var í hópi björgunarsveitarfólks. Ljósmyndir: Landsbjörg

Flókin en vel heppnuð björgunaraðgerð á Austurlandi

Björgunarsveitum á Austurlandi barst klukkan 20 í gær útkall. Ungur maður hafði þá lent í sjálfheldu í klettabelti hátt uppi í Tunguröð, fjalli milli Daladals og Tungudals inn af Fáskrúðsfirði. Drónar voru notaðir til að staðsetja manninn og hafa yfirsýn yfir svæðið á meðan á flóknum aðgerðum stóð. Björgunarsveitir frá Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Neskaupstað komu til aðstoðar. Björgunarfólk hélt á fjallið með fjallabjörgunarbúnað og tókst að komast upp fyrir manninn og síga niður til hans. Hann var þá orðinn kaldur og stirður og ljóst að hann myndi ekki geta gengið niður að sjálfsdáðum. Óskað var eftir þyrlu frá Landhelgisgæslu sem hélt af stað frá Reykjavík rétt upp úr klukkan 22 í gærkvöldi.

Flókin en vel heppnuð björgunaraðgerð á Austurlandi - Skessuhorn