
Veðurstofa Íslands varar við fyrstu haustlægðinni, sem fer yfir landið annað kvöld, föstudag, og fram á laugardagsmorgun. Á spásvæðunum Faxaflóa og Breiðafirði er gert ráð fyrir suðaustan 15-23 m/s og rigningu. Hvassast verður á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi, eins og algengt er í þessari vindátt. Búast má við hviðum að 40 m/sek.…Lesa meira








