
Þór Hauksson Reykdal starfsmaður stýrihópsins, Helga Sif Friðjónsdóttir fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, Arnar Haraldsson starfsmaður stýrihópsins, Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, varaformaður og fulltrúi mennta- og barnamálaráðuneytisins, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Haraldur L. Haraldsson formaður stýrihóps, Hanna Dóra Hólm Másdóttir fulltrúi innviðaráðuneytisins, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar og fulltrúi Reykjavíkurborgar, Rannveig Einarsdóttir, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Funi Sigurðsson, fulltrúi Barna- og fjölskyldustofu.
Tillögur að fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tók í gær við skýrslu stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Hlutverk hópsins var að kortleggja og greina þjónustuþörf barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir. Honum var falið að endurskoða fyrirkomulag úrræða og þjónustu í þessum málaflokki, með réttindi barna og aðgengi þeirra að fullnægjandi þjónustu að leiðarljósi.