Gul viðvörun fylgir fyrstu haustlægðinni annað kvöld – jafnframt stórstreymt

Veðurstofa Íslands varar við fyrstu haustlægðinni, sem fer yfir landið annað kvöld, föstudag, og fram á laugardagsmorgun. Á spásvæðunum Faxaflóa og Breiðafirði er gert ráð fyrir suðaustan 15-23 m/s og rigningu. Hvassast verður á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi, eins og algengt er í þessari vindátt. Búast má við hviðum að 40 m/sek. Því er ekkert ferðavagnaveður og orðið tímabært að hýsa trampólínin og annað palladót. Gula viðvörunin er í gildi frá klukkan 21 á föstudagskvöld og fram til klukkan 08 á laugardagsmorgun.

Þá hefur Landhelgisgæslan vakið athygli á því að samhliða hvassviðrinu verður hæsta stórstreymisflóð ársins og því ættu menn að gæta að eignum í höfnum vestanlands.

Gul viðvörun fylgir fyrstu haustlægðinni annað kvöld - jafnframt stórstreymt - Skessuhorn