
Afar bágborinn aðstaða til sjósetningar á Akranesi og Grundartanga
Meðfylgjandi mynd er af þeim rampi sem sjófarendum býðst að nota til sjósetningar eða landtöku á smábátum í Akraneshöfn. Það skal tekið fram að myndin er tekin á fjöru. Framan við rampinn er klettur sem gerir aðstæður allar fremur erfiðar til athafna og þá eru steyptir klumpar neðan við smábryggjuna ekki til að auðvelda þeim sem þurfa að bakka faratækjum niður. Á liðnum árum hefur ítrekað verið bent á mikilvægi þess að rampinum verði breytt. Meðal annars hefur Björgunarfélag Akraness farið fram á það við Akraneskaupstað, sem er aðildarsveitarfélag að Faxaflóahöfnum, að umbætur verði gerðar sem fyrst. Félagið hefur sömuleiðis, með viðræðum við Hvalfjarðarsveit, beðið um að aðstaða til sjósetningar á Grundartanga verði bætt, en þar er hún bókstaflega engin í dag. Fyrir kemur að björgunarfélagið þurfi að sjósetja báta og/eða sæþotur með miklu hraði, þegar útköll berast. Er þá ekki spurt að því hvort flóð er eða fjara, eða hvort rampur sé til staðar. Björgunartæki skal á flot þegar mannslíf eru talin í húfi. Á Akranesi þarf að bakka kerrum niður með bátum og erfitt að sjá hvernig það á að lukkast vel við þessar aðstæður. Á Grundartanga er hins vegar engin aðstaða; krani eða rampur, eins og fyrr segir.