
Illugi Jónasson skipstjóri á Guðmundi Jenssyni SH með vænan þorsk. Ljósm. af
Nýtt kvótaár gengið í garð
Í dag hófst nýtt kvótáár í sjávarútvegi. Í síðustu viku voru nokkrir bátar við veiðar, en einn af þeim er dragnótarbáturinn Guðmundur Jensson SH. Illugi Jónasson skipstjóri sagði í samtali við Skessuhorn að þeir væru að reyna að ná í kola, en lítið hefur verið af honum. „Við reynum að forðast að veiða þorsk en í fyrsta róðrinum tókum við tvö höl á Víkinni og fengum tíu tonn af þorski, en þorskurinn er meira blandaður en áður,“ segir Illugi. Þeir dragnótarbátar sem hafa einhvern þorskkvóta til að veiða upp í hafa fengið mjög góðan afla skammt frá landi, eða upp í 20 tonn í róðri. Handfæra- og línubátar hafa einnig fengið góðan afla og segja sjómenn að nóg sé af fiski í sjónum, þótt vísindamenn Hafró eigi erfitt með að finna hann!