
Tilraunaverkefni garðyrkjustjóra tekist vel
Í byrjun júní var settur upp tilraunareitur á horni Bresaflatar og Ketilsflatar á Akranesi þar sem girtur var af lítill grasblettur. Hann var ekki sleginn, heldur grasið látið vaxa upp og einungis snyrt. Einnig var villtum blómafræjum sáð í blettinn og var þetta liður í að auka líffræðilega fjölbreytni inni í byggð. Í nýju aðalskipulagi Akraness og í umhverfisstefnu bæjarins er áætlun um að auka líffræðilegan fjölbreytileika. Þessi stefna byggir á stefnu ríkisstjórnarinnar frá 2020, sem byggir á samþykktum aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna. Víða um land eru sveitarfélög að þreifa sig áfram í þessa átt. Tilraunaverkefnið var í höndum Jóns Arnars Sverrissonar garðyrkjustjóra og gæti orðið liður í því að minnka slátt á fleiri grænum grassvæðum í bænum.