
Frá vinstri: Paul Dobbins, framkvæmdastjóri stærstu uhverfissamtaka heims World Wildlife Fund, Sigurður Pétursson og Ingibjörg Valgeirsdóttir meðeigendur Isea, og systkinin Anna Ólöf, Ómar og Ingvar Kristjánsbörn meðeigendur og stofnendur Isea ehf. Ljósmyndir: Skessuhorn/sþ
Þörungavinnsla formlega opnuð í Stykkishólmi
Formleg opnun á þörungavinnslu Isea ehf. fór fram á þriðjudaginn síðastliðinn en vinnslan er staðsett við Nesveg 14 og 16 í Stykkishólmi. ,,Vinnslan er smá í sniðum en á sama tíma líka mikilvægt skref fyrir félagið sem liður í framtíðar uppbyggingu enda áform Isea að byggja stærri húsakost fyrir starfsemina,“ segir Anna Ólöf Kristjánsdóttir stofnandi og framkvæmdastjóri Isea ehf. í samtali við Skessuhorn. Hún segir afurðir þörungaverksmiðjunnar nýtast í fjölbreytta flóru þörungaafurða svo sem mat og íbætiefni fyrir matvælaframleiðslu, fæðubótarefni, dýrafóður, áburð, snyrtivörur, plast, pappa, textíl og ýmislegt fleira.