
Mælirinn er staðsettur við glugga á skrifstofu leikskólastjóra Teigasels. Ljósm. vaks
Loftgæðamælir settur upp á Akranesi
Í samvinnu Akraneskaupstaðar og Umhverfisstofnunar (UST) hefur verið settur upp loftgæðamælir á Akranesi og er hann staðsettur á lóð leikskólans Teigasel. Mæligildi frá honum eru birt með tíu mínútna millibili á vefsíðunni loftgaedi.is ásamt mælingum frá mörgum öðrum stöðum á landinu. Fram kemur á heimasíðu Akraneskaupstaðar að með tilkomu mælisins geta bæjarbúar fengið mikilvægar upplýsingar um loftgæðin í sínu nærumhverfi og þannig gætt að heilsu sinni.