
Ólöglegt samráð var viðhaft um flutninga vegna stóriðjunnar á Grundartanga
Samkeppniseftirlitið (SE) hefur lagt 4,2 milljarða króna stjórnvaldssekt á skipafélagið Samskip vegna ólöglegs samráðs við skipafélagið Eimskip. Er það hæsta sekt sem íslenskt fyrirtæki hefur fengið fyrir slíka háttsemi. Síðar nefnda félagið hafði árið 2021 gengist við brotunum og greiddi því sekt á grundvelli sáttar, sem var „einungis“ 1,5 milljarður króna. Í niðurstöðu eftirlitsins segir að Samskip hafi brotið samkeppnislög með rangri, villandi og ófullnægjandi upplýsingagjöf og gagnaafhendingu. Samráðið snýst m.a. um breytingar á siglingakerfum og takmörkun flutningsgetu, skiptingu á mörkuðum eftir stærri viðskiptavinum í sjó- og landflutningum (forðast að keppa um stærri viðskiptavini hins), samráð um álagningu gjalda og afsláttarkjör í flutningsþjónustu og miðlun á mikilvægum verð- og viðskiptaupplýsingum, samráð um landflutningaþjónustu og skiptingu á mörkuðum á tilteknum flutningaleiðum á Íslandi, samráð um sjóflutninga milli Íslands og annarra landa auk samráðs um skipaafgreiðslu.