Fréttir

true

Sveitarstjórnir hvetja ráðherra til að endurskoða ákvörðun sína

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar gaf í morgun út yfirlýsingu vegna stöðvunar á hvalveiðum. „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar lýsir yfir vonbrigðum og harmar hversu seint ákvörðun matvælaráðherra um tímabundna stöðvun hvalveiða er framkomin, einungis sólarhring áður en hvalveiðar áttu að hefjast og starfsfólk þegar mætt til vinnu. Áhrifin sem þessi fyrirvaralausa og óvænta ákvörðun hefur á samfélagið í Hvalfjarðarsveit og…Lesa meira

true

Sauðafellshlaupið haldið í síðasta sinn

Sauðafellshlaupið var í ár haldið sunnudaginn 18. júní. Var þetta í tíunda og síðasta sinn sem hlaupið er haldið. Rjómabúið Erpsstaðir hefur staðið fyrir hlaupinu frá 2014 en það hefst og endar við brúsapallinn á Erpsstöðum. Um 20-40 manns hafa tekið þátt ár hvert, hlaupandi eða gangandi, hver á sínum hraða. Hlaupið er eftir þjóðvegi…Lesa meira

true

Líf í lundi í Álfholtsskógi um helgina

Næsta laugardag og sunnudag verður haldin árleg skógarhátíð í Álfholtsskógi sem er hluti af landsverkefni Skógræktarfélags Íslands sem kallast Líf í lundi. Þetta fellur saman við dagskrá Hvalfjarðardaga að þessu sinni og er hluti af þeim. Skógræktarfélag Skilmannahrepps opnar skóginn fyrir gestum og ýmislegt verður til skemmtunar. Dagskráin hefst á laugardaginn klukkan 12.30 til klukkan 16…Lesa meira

true

Vegaframkvæmdir við Borgarbraut skulu klárar í október

Unnið hefur verið að endurbótum og lagnagerð á um 550 m kafla Borgarbrautar í Borgarnesi síðan í júlí 2022. Verklok eru áætluð í október á þessu ári en það er Þróttur ehf. á Akranesi sem er með verkið. „Vegurinn var orðinn mjög lélegur. Hann hafði verið steyptur á sínum tíma en var orðinn sprunginn og…Lesa meira

true

Landsmót 50+ og Danskir dagar í Stykkishólmi um næstu helgi

Á morgun og fram til 25. júní næstkomandi verður nóg um að vera í Stykkishólmi. Ekki nóg með að þar verður haldið Landsmót Ungmennafélags Íslands fyrir 50 ára og eldri heldur verður einnig á dagskránni bæjarhátíðin Danskir dagar. Fyrsta hátíðin var haldin árið 1994 og er hún ein af elstu bæjarhátíðum á Íslandi. Undirbúningur fyrir…Lesa meira

true

Sendi flöskuskeyti fyrir fjórtán árum frá Stykkishólmi sem fannst á dögunum á Breiðafirði

Fanney Lilja Harðardóttir var ellefu ára í heimsókn hjá ömmu sinni og afa í Stykkishólmi þegar hún sendi flöskuskeyti fyrir fjórtán árum síðan, nánar tiltekið 21. mars árið 2009. Skeytið, sem var kyrfilega lokað inni í gamalli Sprite flösku, fannst nú á dögunum í Fremri-Langey á Breiðafirði en voru það feðginin Hrafntinna Björk Snorradóttir og…Lesa meira

true

VLFA hefur boðað til opins fundar vegna stöðvunar á hvalveiðum

Verkalýðsfélag Akraness hefur boðað til opins fundar á morgun, fimmtudaginn 22. júní, vegna ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, um bann við hvalveiðum. Ráðherra gaf út þá ákvörðun sína í gær, þriðjudaginn 20. júní, en hvalvertíðin átti að hefjast í dag, 21. júní. Byggir ráðherra ákvörðun sína á áliti fagráðs um velferð dýra sem Matvælastofnun fékk til…Lesa meira

true

Hundagarður opnaður í Stykkishólmi

Unnið hefur verið að undirbúningi hundagerðis í Stykkishólmi undanfarin ár af hálfu sveitarfélagsins. Umræður um hundagerði voru til að mynda áberandi í umhverfisgöngum bæjarstjóra árin 2019 og 2021 og ljóst að mikill áhugi íbúa var fyrir slíku gerði. Í kjölfar samráðs við íbúa samþykkti bæjarstjórn staðsetningu fyrir hundagerði í Stellulundi, við aðkomuna að Arnarborg. Eftir…Lesa meira

true

Fjárfestu í æfingahjóli fyrir Ölduna

Árið 2021 hjóluðu 18 hjólreiðagarpar og velunnarar Spinnigal Hvanneyrarhringinn til styrktar Öldunnar í Borgarnesi sem býður upp á verndaða vinnu, hæfingu og virkniþjálfun fyrir fatlað fólk. Stofnunin var á sínum tíma að safna fyrir kaupum á tæki og hugbúnaði sem gerir iðkendum kleift að horfa á ferðaleiðir í sýndarheimi. Þetta verkefni spratt upp eftir að…Lesa meira