Fréttir

true

Gilitrutt fer um landið

Leikhópurinn Lotta sótti Snæfellsnesið heim í síðustu viku og sýndi þar leikritið Gilitrutt. Lotta er á sýningarferð um landið í sumar og hefur skipulagt alls 57 sýningar á verkinu á um 40 mismunandi stöðum. Sunnudaginn 4. júní voru sýningar í Grundarfirði og Snæfellsbæ og mánudaginn 5. júní var sýning í Stykkishólmi, hvar fréttaritari Skessuhorns smellti…Lesa meira

true

 „Til þess gert að auðga mannlífið og hafa gaman“

Fyrir fjórum árum keypti fyrirtækið D9 ehf. bankahúsið í Búðardal sem stendur við Miðbraut 15. D9 er að stærstum hluta í eigu hjónanna Leifs Steins Elíssonar og Sveinbjargar Júlíu Svavarsdóttur og hafa þau síðan 2019 staðið fyrir framkvæmdum í húsinu sem var byggt árið 1970 og hýsti Búnaðarbankann, KB banka og síðast Arionbanka. Húsið hafði…Lesa meira

true

Saman í sturtu

Síðasta mánudag kom ferðamaður á lögreglustöðina á Akranesi og sagði að úti á tjaldsvæði hefði karlmaður verið að kíkja á sig í sturtunni. Lögregla fór og ræddi við aðilann sem sagðist hafa verið í sturtu á sama tíma en ekki verið að kíkja á milli sturtuklefa. Hann væri hávaxinn og erfitt fyrir hann að passa…Lesa meira

true

Íbúum fjölgar í 8 af 9 sveitarfélögum á Vesturlandi

Þjóðskrá hefur tekið saman nýjar tölur yfir fjölda einstaklinga sem skráðir eru með búsetu hér á landi. Á síðastliðnum sex mánuðum, frá 1. desember 2022 til 1. júní 2023, hefur íbúum á landsvísu fjölgað um 5.800 manns, úr 387.171 í 392.971. Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda á landsvísu hefur íbúum í Eyja-…Lesa meira

true

Varmalandsdagar fóru fram um liðna helgi

Hátíðin Varmalandsdagar fór fram um síðustu helgi að Varmalandi í Stafholtstungum. Hátíðin bar undirtitilinn list og lyst sem vitnar í handgerða list og matarlyst en finna mátti viðburði á vítt og dreift um svæðið tengt þemanu. Á hátíðinni mátti þess vegna finna listsýningar af ýmsu tagi í félagsheimilinu Þinghamri en þar safnaðist listafólk saman úr…Lesa meira

true

Öryggi í samgöngum og forgangsröðun jarðganga áberandi í tillögu að samgönguáætlun 2024-2038

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, kynnti í dag tillögu að samgönguáætlun til fimmtán ára, 2024-2038. Samhliða var áætlunin birt í samráðsgátt stjórnvalda en þar er hægt að senda inn umsögn eða ábendingar fram til 31. júlí 2023. Í tillögunni er áhersla lögð á aukið öryggi í samgöngum, styttingu vegalengda, tengingu byggða og umhverfis- og loftslagsmál. Margar…Lesa meira

true

Landbúnaðarháskóli Íslands tekinn við formennsku í NOVA

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur tekið við formennsku NOVA University Network til næstu þriggja ára og tekur við keflinu frá Landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð (SLU) sem gegnt hefur formennsku undanfarin ár. NOVA er samstarf norrænna háskóla á sviði landbúnaðar, dýralækninga, skógfræði og skyldra greina með áherslu á sameiginleg námskeið fyrir doktorsnema. Sjö norrænir háskólar standa að samstarfinu, en…Lesa meira

true

Leggja til að byggt verði 2.525 fermetra hús fyrir fjölbreytta starfsemi

Stýrihópur Akraneskaupstaðar um Kalmansvelli 5 var stofnaður í fyrravor um uppbyggingu á húsnæði undir áhaldahús, dósamóttöku Fjöliðjunnar og nytjamarkaðinn Búkollu. Hópurinn hefur nú skilað af sér lokaskýrslu. Lagt er til að byggt verði 2.525 fermetra hús úr steinsteyptum einingum að Kalmansvöllum 5 á Akranesi sem hýsa muni ofangreinda starfsemi auk geymslu sem nýtist m.a. vinnuskólanum.…Lesa meira

true

Heilbrigðisstarfsfólki heimilt að vinna til 75 ára aldurs

Alþingi hefur samþykkt frumvarp Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem felur í sér tímabundna undanþágu frá almennri reglu um 70 ára starfslokaaldur ríkisstarfsmanna. Þar með verður heilbrigðisstarfsfólki sem vinnur klínísk störf gert kleift að starfa til 75 ára aldurs hjá opinberum heilbrigðisstofnunum á grundvelli ráðningarsamnings. Með lögunum er bætt inn í lög um heilbrigðisstarfsmenn nýju ákvæði…Lesa meira

true

Rampa upp Stykkishólm

Verkefnið Römpum upp Ísland er í fullum gangi og er þessa dagana í Stykkishólmi. Verkstjóri rampanna kom í heimsókn í Stykkishólm fyrr í vor til að kanna þörf á römpum hjá einkafyrirtækjum í bænum. Í framhaldinu voru gerðar teikningar af þeim römpum sem fyrirhugaðir voru á svæðinu og er nú unnið að því að setja…Lesa meira