Hér eru tveir rampar að verða til. Ljósm. sá

Rampa upp Stykkishólm

Verkefnið Römpum upp Ísland er í fullum gangi og er þessa dagana í Stykkishólmi. Verkstjóri rampanna kom í heimsókn í Stykkishólm fyrr í vor til að kanna þörf á römpum hjá einkafyrirtækjum í bænum. Í framhaldinu voru gerðar teikningar af þeim römpum sem fyrirhugaðir voru á svæðinu og er nú unnið að því að setja þá upp. Þessir vösku menn voru við vinnu á Aðalgötunni þegar fréttaritari Skessuhorns átti leið þar um.

Rampa upp Stykkishólm - Skessuhorn