
3D mynd af fyrirhuguðu húsi. Gláma-Kím arkitektastofa sá um hönnun þess. Teikning fengin úr skýrslu starfshóps.
Leggja til að byggt verði 2.525 fermetra hús fyrir fjölbreytta starfsemi
Stýrihópur Akraneskaupstaðar um Kalmansvelli 5 var stofnaður í fyrravor um uppbyggingu á húsnæði undir áhaldahús, dósamóttöku Fjöliðjunnar og nytjamarkaðinn Búkollu. Hópurinn hefur nú skilað af sér lokaskýrslu. Lagt er til að byggt verði 2.525 fermetra hús úr steinsteyptum einingum að Kalmansvöllum 5 á Akranesi sem hýsa muni ofangreinda starfsemi auk geymslu sem nýtist m.a. vinnuskólanum.