Tónlistarmaðurinn KK spilaði á Hótel Varmalandi. Ljósm. vh.

Varmalandsdagar fóru fram um liðna helgi

Hátíðin Varmalandsdagar fór fram um síðustu helgi að Varmalandi í Stafholtstungum. Hátíðin bar undirtitilinn list og lyst sem vitnar í handgerða list og matarlyst en finna mátti viðburði á vítt og dreift um svæðið tengt þemanu. Á hátíðinni mátti þess vegna finna listsýningar af ýmsu tagi í félagsheimilinu Þinghamri en þar safnaðist listafólk saman úr ýmsum listgreinum og kynnti afrakstur sinnar vinnu. Mynd - og listasýning Louise Harris var sett upp á Hótel Varmalandi fyrir helgina og verður sýningin opin þar alla daga fram á haust. Einnig var ýmislegt matarkyns að finna á hátíðinni en Hótel Varmaland bauð upp á fjögurra rétta matseðil í tilefni hátíðarinnar, súpufélagið bauð upp á súpu í hádeginu en einnig var kveikt í útigrilli í skóginum þar sem Ungmennafélag Stafholtstungna grillaði brauð fyrir gesti. Nytjamarkaður og jólahús var einnig á svæðinu.

Varmalandsdagar fóru fram um liðna helgi - Skessuhorn