Íbúum fjölgar í 8 af 9 sveitarfélögum á Vesturlandi

Þjóðskrá hefur tekið saman nýjar tölur yfir fjölda einstaklinga sem skráðir eru með búsetu hér á landi. Á síðastliðnum sex mánuðum, frá 1. desember 2022 til 1. júní 2023, hefur íbúum á landsvísu fjölgað um 5.800 manns, úr 387.171 í 392.971. Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda á landsvísu hefur íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2022, um 7,1% en íbúum þar fjölgaði um 8 íbúa, úr 112 í 120. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Skorradalshreppi á landsvísu, eða um 6,9% en þar fjölgaði um 4 íbúa á sama tímabili, úr 58 í 62. Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í átta sveitarfélögum.

Íbúum fjölgar í 8 af 9 sveitarfélögum á Vesturlandi - Skessuhorn