Fréttir

true

Dagsetning komin á bæjar- og héraðshátíðir á Vesturlandi í sumar

Bæjar- og héraðshátíðir verða haldnar nokkuð víða á Vesturlandi í sumar. Þó er það þannig að jafnvel þótt komnar séu dagsetningar á þær allar þá er dagskráin ekki alveg tilbúin og fullmótuð enda enn nægur tími til undirbúnings. Skessuhorn tók saman yfirlit og dagsetningar yfir þær hátíðir sem útlit er fyrir að verði haldnar á…Lesa meira

true

Síðasta morgunstundin í Brekkó á þessu skólaári – Myndasyrpa

Morgunstund var haldin í Brekkubæjarskóla á Akranesi í gær á síðasta starfsdegi skólans á þessu skólaári. Þar voru á boðstólum atriði frá nemendum skólans og stóðu þeir sig allir með mikilli prýði. Veittar voru viðurkenningar í sandkastalakeppni sem var á mánudaginn á Langasandi og þá fengu nemendur úr öllum árgöngum viðurkenningu fyrir að iðka góðar…Lesa meira

true

Mikið fjör um sjómannadagshelgina – MYNDASYRPA

Sjómannadagshelgin í Grundarfirði fór vel fram að vanda. Allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi og fær sjómannadagsráð hrós fyrir viðburði sem voru fyrir unga sem aldna. Hvort sem það var hin hefðbundna fiskasýning í leikskólanum, koddaslagur og ærslagangur fyrir grunnskólanemendur eða þrautabrautin á hafnarsvæðinu, þá gátu allir haft gaman að.Lesa meira

true

Opnun á Arnarvatnsheiði mun seinka þetta árið

“Drullusokkar sem virða ekki vegalokanir hafa stórskemmt vegslóðana“ Í gær fóru félagarnir Snorri Jóhannesson og Guðmundur Kristinsson, formaður Veiðifélags Arnarvatnsheiðar, í skoðunarferð á heiðina. Venjulega er opnað fyrir veiði um miðjan júní en ljóst að það mun dragast eitthvað þetta sumarið vegna mikils klaka í jörðu og aurbleytu á vegslóðum á heiðinni. Heiðin var að…Lesa meira

true

Lokahóf íþróttaskólans í Dalabyggð

Íþróttaskóli Undra, fyrir börn á leikskólaaldri í Dalabyggð, hélt uppá síðasta tímann fyrir sumarfrí laugardaginn 3. júní síðastliðinn. Íþróttaskólinn hefur nú verið starfræktur í tvö ár í íþróttahúsinu inn að Laugum í Sælingsdal. Tímarnir hafa verið annan hvern laugardag frá ágústlokum fram í júníbyrjun og hafa verið vel sóttir og skemmtilegir. Góð aðstaða er til…Lesa meira

true

Nýr klasi um söfn og sýningar á Vesturlandi

Í gær fór fram í Snorrastofu í Reykholti stofnfundur klasa safna, sýninga og setra á Vesturlandi. Verkefnið hafði talsverðan aðdraganda en undirbúningsvinna var m.a. í höndum Signýjar Óskarsdóttur sérfræðings hjá Creatrix og Sigursteins Sigurðssonar menningarfulltrúa SSV. Fyrir nokkrum árum var lagt til að ráðist yrði í stofnun safnaklasa og að sýningar, setur og önnur safnatengd…Lesa meira

true

Kátir krakkar á Karnivali – MYNDASYRPA

Það var líf og fjör á skólalóð Brekkubæjarskóla á Akranesi fyrir hádegi á mánudaginn þar sem Karnival fór fram. Margir mættu í alls konar búningum, hinir ýmsu leikir voru í gangi, boðið upp á andlitsmálun og margt fleira. Allir virtust skemmta sér hið besta enda veður með ágætum og skólinn brátt á enda. Boðið var…Lesa meira

true

Salmonella í kjúklingi frá Matfugli

Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur framleiðslulotum af kjúklingi frá Matfugli ehf. vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna og  sent út fréttatilkynningu. Varan hefur verið til í verslunum Bónus og Krónunnar. Innköllunin á einungis við eftirtaldar framleiðslulotur: Vöruheiti: Ali, Bónus. Lotunúmer/tegundir/pökkunardagar: 011-23-17-5-64 og 011-23-17-6-64 (heill kjúklingur, bringur, lundir, lærakjöt, bitar), pökkunardagur 01.06.2023 –…Lesa meira

true

Hafa starfað á kúabúum í Danmörku, Frakklandi og Nýja-Sjálandi

Á Helgavatni í Þverárhlíð er myndarlegt kúabú sem bræðurnir Vilhjálmur og Pétur Diðrikssynir hafa rekið undanfarna áratugi ásamt eiginkonum sínum, Ágústu Ólöfu Gunnarsdóttur og Karítas Hreinsdóttur. Nú eru ákveðin tímamót á Helgavatni þar sem næsta kynslóð undirbýr að taka við búinu, en þau Diðrik Vilhjálmsson og Sigríður Guðbjartsdóttir hafa nú þegar byggt sér hús á…Lesa meira

true

Fjölmenni á hátíðarhöldunum í Snæfellsbæ – MYNDASYRPA

Hátíðarhöld í tilefni sjómannadagsins fóru að venju fram í Snæfellsbæ. Skipulag þeirra og þátttaka var með ágætum og hafa ekki jafn margir gestir verið saman komnir í mörg ár til þess að fagna þessum hátíðisdegi sjómanna og fjölskyldna þeirra. Á föstudag var farið í skemmtisiglingu á þremur bátum út á víkina og að Vallarbjargi til…Lesa meira