
Íspinnar slá alltaf í gegn.
Lokahóf íþróttaskólans í Dalabyggð
Íþróttaskóli Undra, fyrir börn á leikskólaaldri í Dalabyggð, hélt uppá síðasta tímann fyrir sumarfrí laugardaginn 3. júní síðastliðinn. Íþróttaskólinn hefur nú verið starfræktur í tvö ár í íþróttahúsinu inn að Laugum í Sælingsdal. Tímarnir hafa verið annan hvern laugardag frá ágústlokum fram í júníbyrjun og hafa verið vel sóttir og skemmtilegir. Góð aðstaða er til þessarar iðkunar í íþróttahúsinu og hafa ýmis félagasamtök styrkt íþróttaskólann til kaupa á búnaði. Eins og sjá má á myndum voru allir ánægðir með veturinn og glaðir með íspinna í lok tímans.


