Kátir krakkar á Karnivali – MYNDASYRPA

Það var líf og fjör á skólalóð Brekkubæjarskóla á Akranesi fyrir hádegi á mánudaginn þar sem Karnival fór fram. Margir mættu í alls konar búningum, hinir ýmsu leikir voru í gangi, boðið upp á andlitsmálun og margt fleira. Allir virtust skemmta sér hið besta enda veður með ágætum og skólinn brátt á enda. Boðið var upp á pylsur í tilefni dagsins og ljóst að nemendur fóru saddir og sælir heim á leið um hádegisbilið. Blaðamaður Skessuhorns kíkti við og tók nokkrar myndir af herlegheitunum.

Kátir krakkar á Karnivali - MYNDASYRPA - Skessuhorn