
Stofnaðilar safnaklasans sem mættir voru auk Signýjar og Sigursteins sem undirbjuggu stofnfundinn. Ljósmyndir: mm
Nýr klasi um söfn og sýningar á Vesturlandi
Í gær fór fram í Snorrastofu í Reykholti stofnfundur klasa safna, sýninga og setra á Vesturlandi. Verkefnið hafði talsverðan aðdraganda en undirbúningsvinna var m.a. í höndum Signýjar Óskarsdóttur sérfræðings hjá Creatrix og Sigursteins Sigurðssonar menningarfulltrúa SSV. Fyrir nokkrum árum var lagt til að ráðist yrði í stofnun safnaklasa og að sýningar, setur og önnur safnatengd starfsemi sem ekki fellur undir safnalög hafi jafnframt aðgang að vettvanginum. Hér eftir má því gera ráð fyrir að samstarf vestlenskra safna muni aukast til muna. Á fundinum var skrifað undir stofnskjal klasans og kosið í fyrstu stjórn.