
Sirrý og Diðrik í eldhúsinu heima að Vatnsási. Ljósm. sþ.
Hafa starfað á kúabúum í Danmörku, Frakklandi og Nýja-Sjálandi
Á Helgavatni í Þverárhlíð er myndarlegt kúabú sem bræðurnir Vilhjálmur og Pétur Diðrikssynir hafa rekið undanfarna áratugi ásamt eiginkonum sínum, Ágústu Ólöfu Gunnarsdóttur og Karítas Hreinsdóttur. Nú eru ákveðin tímamót á Helgavatni þar sem næsta kynslóð undirbýr að taka við búinu, en þau Diðrik Vilhjálmsson og Sigríður Guðbjartsdóttir hafa nú þegar byggt sér hús á jörðinni. Þau eru í rólegheitum að taka við búinu ásamt bróður Diðriks; Bjarka Vilhjálmssyni og Þuríði Ingu Geirdal.