Þessar stúlkur úr 10. bekk sungu Lífið er yndislegt. Ljósmyndir: vaks

Síðasta morgunstundin í Brekkó á þessu skólaári – Myndasyrpa

Morgunstund var haldin í Brekkubæjarskóla á Akranesi í gær á síðasta starfsdegi skólans á þessu skólaári. Þar voru á boðstólum atriði frá nemendum skólans og stóðu þeir sig allir með mikilli prýði. Veittar voru viðurkenningar í sandkastalakeppni sem var á mánudaginn á Langasandi og þá fengu nemendur úr öllum árgöngum viðurkenningu fyrir að iðka góðar dyggðir. Þá stigu tveir nemendur úr 10. bekk á svið í lokin og sögðu í stuttu máli frá þessum tíu eftirminnilegu árum sem þeir höfðu stundað nám í Brekkubæjarskóla.

Síðasta morgunstundin í Brekkó á þessu skólaári - Myndasyrpa - Skessuhorn