
Hringur SH og Farsæll SH sáu um skemmtisiglinguna þetta árið en hér eru þeir að koma í land við hliðina á skemmtiferðaskipinu Seabourn Venture sem lá við bryggju. Ljósm. tfk.
Mikið fjör um sjómannadagshelgina – MYNDASYRPA
Sjómannadagshelgin í Grundarfirði fór vel fram að vanda. Allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi og fær sjómannadagsráð hrós fyrir viðburði sem voru fyrir unga sem aldna. Hvort sem það var hin hefðbundna fiskasýning í leikskólanum, koddaslagur og ærslagangur fyrir grunnskólanemendur eða þrautabrautin á hafnarsvæðinu, þá gátu allir haft gaman að.