Fréttir

true

Í átt að kolefnishlutleysi Reykhólahrepps

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Jóhanna Ösp Einarsdóttir, varaoddviti Reykhólahrepps, hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um framkvæmd aðgerða til að stuðla að kolefnishlutleysi í Reykhólahreppi sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og sveitarfélagið ætla að hrinda í framkvæmd. „Markmið stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og markmið um kolefnishlutleysi og full orkuskipti kallar á skýra…Lesa meira

true

Sögutorgin í Borgarnesi – Spurningakönnun

Nýverið var verkefninu Sögutorgin ýtt af stokkunum en verkefnið felur í sér forhönnun tveggja torga í gamla bænum í Borgarnesi (Skallagrímstorg/ Kveldúlfstorg og Landnámstorg/ Brákartorg) og ássins á milli þeirra (Borgarbraut/ Brákarbraut). Markmiðið er að skapa aðlaðandi og nytsamlegt miðbæjarumhverfi fyrir íbúa og gesti. Verkefnið er unnið að Alternance slf í samvinnu við Borgarbyggð með…Lesa meira

true

Atvinnuleysi rúm tvö prósent

Atvinnuleysi var 2,3% í apríl síðastliðnum samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands. Dróst það saman um 0,8 prósentustig á milli mánaða. Atvinnuleysi var 2,7% á meðal karla og 1,8% á meðal kvenna. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 80,9% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 79,0%.Lesa meira

true

Veiðibækur afnumdar og rafræn skráning tekin upp á lax- og silungsveiði

Á komandi veiðisumri er gert ráð fyrir því að öll stang- og netaveiði á laxi og silungi hér á landi verði skráð rafrænt. Hafrannsóknastofnun hefur í samstarfi við Fiskistofu opnað aðgang fyrir rafræna skráningu á veiði og er hægt að nálgast skráningarform á slóðinni https://veidibok.hafogvatn.is/. Aðgangur að skráningakerfinu er gjaldfrjáls og er hægt að framkvæma…Lesa meira

true

Gengur Jakobsveginn til styrktar Krabbameinsfélagi Snæfellsness

Snæfellingurinn Eygló Kristjánsdóttir gengur Jakobsveginn (El Camino Francés) um þessar mundir en það er ein þekktasta pílagrímaleið í Evrópu, tæplega 800 kílómetra löng. Gangan hófst í Saint Jean Pied de Port í Frakklandi þriðjudaginn 25. apríl og endar í Santiago de Compostela á Spáni 31. maí nk. Þegar blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Eyglóar…Lesa meira

true

Hraðablinda orsök fyrir hraðakstri

Seinni part síðasta mánudags var ökumaður tekinn fyrir að aka á 133 kílómetra hraða á Hálsbæjarvegi á Vestfjarðavegi. Þegar lögreglan ræddi við ökumanninn og spurði hann út í hraðaksturinn sagði hann orsökina vera svokallaða hraðablindu. Ekki fylgir sögunni hvort viðkomandi hafi verið með vottorð upp á það og sloppið við sekt en hraðablinda getur verið…Lesa meira

true

Stýrivextir komnir í hæstu hæðir

Í morgun var tilkynnt um ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um að hækka stýrivexti um 1,25 prósentustig. Meginvextir stofnunarinnar verða því 8,75%. Þetta er í þrettánda sinn í röð sem Seðlabankinn hækkar stýrivexti. Jafnframt hefur nefndin ákveðið að hækka fasta bindiskyldu innlánsstofnana úr 1% í 2%. Í yfirlýsingu stofnunarinnar segir að efnahagsumsvif hafi verið kröftug það…Lesa meira

true

Næturmarkaður í Sögumiðstöðinni

Fimmtudaginn 11. maí síðastliðinn var svokallaður næturmarkaður í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði. Markaðurinn var opnaður klukkan 17:00 og var opinn fram á kvöld. Þar kenndi ýmissa grasa og var hægt að gera fínustu kaup. Nemendur í 9. bekk voru með kökusölu, Valeria kaffihús með ilmandi kaffibaunir og svo var hægt að kaupa notaðar vörur ásamt handverki…Lesa meira

true

„Byggjum þetta á reynslunni“

Voot ehf. opnaði nýja verslun í Ólafsvík fyrir rétt rúmu ári síðan og þar er lögð áhersla á gott úrval af rekstrarvörum fyrir sjávarútveg, landbúnað, matvælavinnslur og aðra starfsemi en einnig sérvöru fyrir bæjarbúa. Auk þess selur verslunin efnavörur og olíur frá Olís. Björn Haraldur Hilmarsson er útibússtjóri Voot á Snæfellsnesi og blaðamaður Skessuhorns kíkti…Lesa meira

true

Sjómannablað í næstu viku

Í næstu viku verður Skessuhorn að mestu helgað störfum sjómanna í tilefni þess að Sjómannadagurinn er sunnudaginn 4. júní. Rætt verður við sjómenn víðsvegar um Vesturland um störf þeirra og leik. Þeir sem vilja koma auglýsingum á framfæri í þetta blað er bent á að frestur til þess rennur út á hádegi föstudaginn 26. maí.…Lesa meira