Sögutorgin í Borgarnesi – Spurningakönnun

Nýverið var verkefninu Sögutorgin ýtt af stokkunum en verkefnið felur í sér forhönnun tveggja torga í gamla bænum í Borgarnesi (Skallagrímstorg/ Kveldúlfstorg og Landnámstorg/ Brákartorg) og ássins á milli þeirra (Borgarbraut/ Brákarbraut). Markmiðið er að skapa aðlaðandi og nytsamlegt miðbæjarumhverfi fyrir íbúa og gesti. Verkefnið er unnið að Alternance slf í samvinnu við Borgarbyggð með stuðningi Evrópuverkefnisins Human Cities – Smoties.

Sögutorgin í Borgarnesi - Spurningakönnun - Skessuhorn