
Jói og Bjössi eru ánægðir í vinnunni.
„Byggjum þetta á reynslunni“
Voot ehf. opnaði nýja verslun í Ólafsvík fyrir rétt rúmu ári síðan og þar er lögð áhersla á gott úrval af rekstrarvörum fyrir sjávarútveg, landbúnað, matvælavinnslur og aðra starfsemi en einnig sérvöru fyrir bæjarbúa. Auk þess selur verslunin efnavörur og olíur frá Olís. Björn Haraldur Hilmarsson er útibússtjóri Voot á Snæfellsnesi og blaðamaður Skessuhorns kíkti við á Ólafsbraut 19 þegar hann var á ferðinni þar nýverið.