
Gengur Jakobsveginn til styrktar Krabbameinsfélagi Snæfellsness
Snæfellingurinn Eygló Kristjánsdóttir gengur Jakobsveginn (El Camino Francés) um þessar mundir en það er ein þekktasta pílagrímaleið í Evrópu, tæplega 800 kílómetra löng. Gangan hófst í Saint Jean Pied de Port í Frakklandi þriðjudaginn 25. apríl og endar í Santiago de Compostela á Spáni 31. maí nk. Þegar blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Eyglóar miðvikudaginn 17. maí var hún stödd í smábænum Villadangos del Paramo á Spáni. Þann daginn hafði verið stutt ganga á dagskrá, um 20 kílómetra leið með upphafspunkt í borginni León. Eygló hafði þá þegar gengið í heildina um 500 kílómetra og átti tæplega 300 kílómetra eftir. Eygló ákvað að gera gönguna að styrktargöngu fyrir Krabbameinsfélag Snæfellsness og hafa þegar safnast um 600 þúsund krónur.